Listræn stjórnun

„Berjadagar tónlistarhátíð Ólafsfirði eru einstæð hugljómun þeim sem þá sækja. Fjölbreytileikinn mikill og metnaður listamanna mikill. Ógleymanleg listahátíð á sólríkum norðurhjara á sólríkum Ólafsfirði.“

Úr gestabók Berjadaga, berjadagar.is
Tónlistarfólk með hljóðfæri sín í fjöruborðinu, fjöll í baksýn

Berjadagar tónlistarhátíð

Tónlistarhátíðin Berjadagar var stofnuð árið 1998 og hefur verið í höndum Ólafar frá 2013 en hún á rætur að rekja til Ólafsfjarðar. Hátíðin hefur verið tækifæri fyrir íslenska listamenn úr sígildum tónlistarheimi að flytja list sína. Hún hefur skipulagt tugi tónleika í Ólafsfjarðarkirkju og Menningarhúsinu Tjarnarborg, Pálshúsi og víðar. Berjadagar tónlistarhátíð er einn af fjölmörgum listviðburðum í menningarflóru Norðurlands eystra í bæjarfélaginu Fjallabyggð, en það sameinar Ólafsfjörð og Siglufjörð. Þeir nálgast hundruð, listamennirnir sem hafa komið til að spila og syngja á Berjadögum. Stofnandi árið 1998 var föðurbróðir Ólafar, Örn Magnússon píanóleikari.

www.berjadagar.is

Viltu spjalla um sígilda tónleika sem þú stendur fyrir?

Ertu skipuleggjandi eða hljóðfæraleikari og vilt skapa tengingu við tónlistarfólk? Skrifaðu á olofsi@gmail.com eða berjadagar.artfest@gmail.com, eða hringdu í síma +354 615 2231.